Airpure Precious Petals Romance eru ilmandi duftpokar sem gefa frá sér mjúkan og notalegan blómailm í minni rýmum heimilisins. Ilmurinn losnar smám saman úr pokunum og þeir eru einföld leið til að halda góðum ilmi þar sem þú vilt – án rafmagns, úða eða rafhlaðna.
Precious Petals Romance er rómantískur blómailmur, innblásinn af fallegum blómum og rósablöðum.
Fullkomnir í fataskápinn, skúffurnar, skóskápinn, ferðatöskuna, íþróttatöskuna eða bílinn. Einnig má nota pokana til að halda góðum ilmi við ruslafötuna.
Í pakkanum eru 3 ilmpokar.
Notkun
Taktu einn ilmpoka úr ytri umbúðunum og komdu honum fyrir eða hengdu hann upp þar sem þú vilt njóta ilmsins. Ekki opna sjálfan ilmpokann. Skiptu honum út þegar ilmurinn fer að dvína.
Innihaldsefni
Ilmefni (Parfum).
Öryggisupplýsingar
Geymið þar sem börn og gæludýr ná ekki til. Innihaldið má ekki innbyrða. Ef pokinn skemmist skal forðast að innihaldið komist í snertingu við húð eða augu. Þvoið hendur eftir snertingu við innihaldið.
Athugið: Allar vöruupplýsingar og fullyrðingar eru birtar eins og þær koma frá framleiðanda.