Airpure Wax Melts Apple Cinnamon 86g
Airpure Wax Melts Apple Cinnamon er ilmvax með klassískri blöndu af eplum og kanil. Hlýr og aðlaðandi ilmur sem hentar fullkomlega þegar þú vilt skapa extra notalega stemningu á heimilinu yfir haustið, veturinn og um jólin.
Ilmvaxið er hitað í vaxhitara eða og losar ilminn smám saman út í rýmið. Apple Cinnamon sameinar ávaxtaríkan ilm af rauðum eplum og hlýjan, kryddaðan kanil – einstaklega notalegur ilmur fyrir dimm kvöld, aðventuna og jólin.
Varan er hönnuð til að fríska upp á loftið og hjálpa til við að hlutleysa óæskilega lykt.
Notkun
Brjótið af æskilegt magn af ilmvaxi og setjið í skálina á vaxhitaranum. Hitið vaxið og látið ilminn dreifast smám saman um rýmið. Fylgið alltaf notkunarleiðbeiningum vaxhitarans.
Öryggisupplýsingar
Geymist þar sem börn ná ekki til. Notið aðeins í viðeigandi vaxhitara. Skiljið aldrei vaxhitara með logandi sprittkerti eftir án eftirlits. Haldið frá eldfimum efnum. Lesið öryggisupplýsingarnar á umbúðunum fyrir notkun.
Athugið: Allar vöruupplýsingar og fullyrðingar eru birtar eins og framleiðandi gefur þær upp.