Elbow Grease Stain Remover Gel – Blettahreinsigel 200ml
Elbow Grease Stain Remover Gel er þétt blettahreinsigel sem er sérstaklega hannað til að formeðhöndla bletti á fötum og öðrum textílefnum fyrir þvott. Gelið er borið beint á blettinn og vinnur á áhrifaríkan hátt, jafnvel á inntorkuðum og erfiðum blettum.
Flaskan er með handhægum bursta sem auðveldar að dreifa gelinu og vinna það inn í trefjar efnisins, nákvæmlega þar sem þörf er á.
Varan er notuð fyrir hefðbundinn vélþvott eða handþvott og veitir markvissa blettahreinsun án bleikiefna.
Notkun
Fjarlægið umframvökva eða fastar leifar af óhreinindum áður en meðhöndlun hefst.
Berið gelið á blettinn báðum megin á efninu.
Notið burstann til að vinna blettahreinsinn vel inn í blettinn og látið virka í 5 mínútur.
Þvoið síðan eins og venjulega með hefðbundnu þvottaefni, annaðhvort í þvottavél eða í höndunum.
Fylgið ávallt þvottaleiðbeiningum framleiðanda textílefnisins.
Hentar ekki fyrir vatnsheld textílefni, flauel, leður eða rúskinn.
Innihaldsefni
5–15% ójónísk yfirborðsvirk efni.
Ilmur, ensím (Subtilisin, Amylase, Cellulase), DMDM Hydantoin, Methylchloroisothiazolinone og Methylisothiazolinone.
HÆTTA
Veldur alvarlegum augnskaða. Getur valdið ofnæmisviðbrögðum í húð. Geymist þar sem börn ná ekki til. Lesið merkimiðann fyrir notkun. Þvoið hendur vandlega eftir notkun. BERIST EFNIÐ Í AUGU: Skolið varlega með vatni í nokkrar mínútur. Fjarlægið augnlinsur ef það er auðvelt. Haldið áfram að skola. Ef augnerting er viðvarandi: Leitið læknis. Ef húðerting eða útbrot koma fram: Leitið læknis. Eitrunarmiðstöðin: 543 2222.
Athugið: Allar vöruupplýsingar og fullyrðingar eru birtar eins og framleiðandi gefur þær upp.